Teikninámskeið

6-8 ára og 9-10 ára

6.-10. júlí

13.-17. júlí

Námskeið fyrir 9-10 ára verður haldið vikuna 6. - 10. júlí kl. 13:30-16:30 og verður með svipuðu móti og hitt, að undantöldum hádegismat. Nánari dagskrá verður birt síðar.

Námskeið fyrir 6-8 ára er frá klukkan 9 - 13, mánudag til föstudags og er haldið í skúr við hliðina á Urriðaholtsskóla.

Hvern dag er nýtt viðfangsefni eða þema sem við vinnum út frá. Börnin fá að geyma listaverkin sín í möppu sem er merkt þeim og Þórunn heldur utan um. Í lok námskeiðs fá þau svo að taka með sér heim bók, sem inniheldur öll listaverk vikunnar, auk tómra blaðsíðna í lokin til að bæta við fleirum.

Hádegismatur er kl. 11:30. Þegar börnin hafa lokið við að borða, fá þau að leika sér með krítar, sippubönd og sápukúlur sem eru í boði. Þá förum við aftur inn og klárum daginn þar.

Í vikunni er farið í tvær stuttar vettvangsferðir, göngutúr að tína blóm og heimsókn á Hönnunarsafn Íslands. Foreldrar fá svo sendar myndir af barninu sínu í tölvupósti, þegar námskeiðinu er lokið.

Athugið að um er að ræða um 2 klst. af einbeitingarvinnu í senn og því getur verið að námskeiðið henti ekki öllum börnum.

Æskilegt er að börnin taki með sér vatnsbrúsa, og nesti ef við á.

Óæskilegt er að taka að heiman leikföng eða annað sem truflað getur einbeitingu þeirra eða annarra barna á námskeiðinu.

um þórunni

Þórunn Snjólaug Gunnarsdóttir heiti ég og er 27 ára gömul. Ég starfa í Urriðaholtsskóla á leikskólastigi, auk þess sem ég er mikill listunnandi og -áhugakona. Ég hef teiknað og skapað síðan ég var barn og hef metnað fyrir því að leiðbeina börnum á sinni listrænu vegferð.

Yngri systir mín, Gyða, verður mér innan handar en hún er 18 ára nemi við myndlistarbraut FÁ.

verkefnin

Verkefni vikunnar

mánudagur

Teiknimyndapersónur

þriðjudagur

Sjálfsmynd

miðvikudagur

Blóm og plöntur

fimmtudagur

Dýrin

föstudagur

Klára verkefni

Skreyta bók

Frjálst

(Með fyrirvara um breytingar)

Byrjendavænt

Hægt er að æfa sig með því að herma eftir fyrirmyndum, taka í gegn, eða lita inn í.

Fyrir lengra komna

Í boði að teikna með blýanti, lita inn í, og fara yfir útlínur með penna.

verðskrá

námskeið fyrir 6-8 ára (kl. 9-13)

24.500 kr. án hádegismatar

29.500 kr. með hádegismat

námskeið fyrir 9-10 ára (kl. 13:30-16:30)

24.500 kr.

ATH!

4.500 kr. greiðast í staðfestingargjald um leið og skráning fer fram. Rest (20.000 kr. eða 25.000 kr.) greiðist fyrir 30. júní. Leyfilegt er að greiða alla upphæðina við skráningu.

Skráningarfrestur er til 15. júní.

skráning

ATHUGIÐ

Skráning er aðeins staðfest þegar staðfestingargjald (4500 kr.) hefur verið greitt og foreldri/forsjáraðili hefur fengið tölvupóst þess efnis að barnið sé skráð