um þórunni
Þórunn Snjólaug Gunnarsdóttir heiti ég og er 27 ára gömul. Ég starfa í Urriðaholtsskóla á leikskólastigi, auk þess sem ég er mikill listunnandi og -áhugakona. Ég hef teiknað og skapað síðan ég var barn og hef metnað fyrir því að leiðbeina börnum á sinni listrænu vegferð.
Yngri systir mín, Gyða, verður mér innan handar en hún er 18 ára nemi við myndlistarbraut FÁ.