Námskeið fyrir 9-10 ára verður haldið vikuna 6. - 10. júlí kl. 13:30-16:30 og verður með svipuðu móti og hitt, að undantöldum hádegismat. Nánari dagskrá verður birt síðar.
Námskeið fyrir 6-8 ára er frá klukkan 9 - 13, mánudag til föstudags og er haldið í skúr við hliðina á Urriðaholtsskóla.
Hvern dag er nýtt viðfangsefni eða þema sem við vinnum út frá. Börnin fá að geyma listaverkin sín í möppu sem er merkt þeim og Þórunn heldur utan um. Í lok námskeiðs fá þau svo að taka með sér heim bók, sem inniheldur öll listaverk vikunnar, auk tómra blaðsíðna í lokin til að bæta við fleirum.
Hádegismatur er kl. 11:30. Þegar börnin hafa lokið við að borða, fá þau að leika sér með krítar, sippubönd og sápukúlur sem eru í boði. Þá förum við aftur inn og klárum daginn þar.
Í vikunni er farið í tvær stuttar vettvangsferðir, göngutúr að tína blóm og heimsókn á Hönnunarsafn Íslands. Foreldrar fá svo sendar myndir af barninu sínu í tölvupósti, þegar námskeiðinu er lokið.
Athugið að um er að ræða um 2 klst. af einbeitingarvinnu í senn og því getur verið að námskeiðið henti ekki öllum börnum.
Æskilegt er að börnin taki með sér vatnsbrúsa, og nesti ef við á.
Óæskilegt er að taka að heiman leikföng eða annað sem truflað getur einbeitingu þeirra eða annarra barna á námskeiðinu.